Á síðasta fundi bæjarráðs Vesturbyggðar var samþykkt að selja eignir í samræmi við það sem ákveðið var í fjárhagsáætlun ársins.
Samþykkti bæjarráð samhljóða að bæjarstjóra væri heimilt að undirrita skjöl varðandi sölu eftirtalinna eigna í eigu Vesturbyggðar:
– Stekkar 13, Patreksfirði fyrir 9 millj. kr.
– Aðalstræti 105, Patreksfirði fyrir 9 millj. kr.
– Sæbakka 4, Bíldudal (íbúð 01-02) fyrir 11,1 millj. kr.
– Lönguhlíð 18, Bíldudal fyrir 700.000 kr.