Knattspyrnulið Vestra í karlaflokki hefur leik í 1. deildinni í dag með leik á móti Víkingi í Ólafsvík. Hefst leikurinn kl 14. Liðið vann sér sæti í 1. deildinni, sem heitir Lengjudeild, með góðri frammistöðu á síðasta sumri þar sem það varð í 2. sæti í 2. deildinni. Bjarni Jóhannsson verður áfram þjálfari liðsins.
Tólf lið leika í 1. deild og eru leiknar tvær umferðir, samtals 22 leikir. Mótið hefst óvenjuseint vegna farsóttarinnar sem kom upp í mars. Síðasta umferðin verður leikin 10. október og á Vetsri þá heimaleik gegn Aftureldingu.
Fáir leikir hafa verið leiknir á undirbúningstímabilinu og afar snúið er að gera sér grein fyrir stöðu liðanna.
KSÍ hélt í gær kynningarfund fyrir Lengjudeild karla og kynnti meðal efnis hina árlegu spá formanna, þjálfara og fyrirliða einstakra liða um lokastöðu þeirra.
ÍBV og Keflavík er spáð sæti í Pepsi Max deild karla að ári á meðan Leikni F. og Magna er spáð falli.
Nýliðum Vestra er spáð 8. sæti deildarinnar sem þýðir að liðið heldur sæti sínu í deildinni.
1. ÍBV – 410 stig
2. Keflavík – 360 stig
3. Grindavík – 329 stig
4. Leiknir R. – 304 stig
5. Fram – 272 stig
6. Þór – 247 stig
7. Víkingur Ó. – 201 stig
8. Vestri – 137 stig
9. Afturelding – 134 stig
10. Þróttur R. – 109 stig
11. Leiknir F. – 105 stig
12. Magni – 72 stig