Tveir Ísfirðingar voru í dag sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingur, fékk riddarakross fyrir framlag til hönnunar fiskiskipa og íslensks sjávarútvegs og Helgi Björnsson leikari og tónlistarmaður var í dag sæmdur riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar.
All voru fjórtán Íslendingar sæmdir orðunni í dag í tilefni af þjóðhátíðardeginum.
Þá var Helgi Björnsson útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur 2020 við hátíðlega athöfn í Höfða. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að útnefningin sé heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í listalífi og samfélaginu. Helga var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.