Nú þegar strandveiðitímabilið er tæplega hálfnað er búið að veiða um 4.900 tonnum frá því að tímabilið hófst í maí og eru það rétt rúmlega 44% af þeim 11.100 tonnum sem strandveiðibátum hefur verið úthlutað í sumar.
Þessi 11.100 tonn skiptast þannig að þorskur er 10,000 tonn, ufsi 1000 tonn og 100 tonn eru gullkarfi.
Fleiri bátar eru á strandveiðum í ár heldur en verið hefur undanfarin ár, en 614 bátar hafa landað afla á þessu ári í fyrra voru þeir 555 og árið þar áður 483.
Tveir mánuðir, júlí og ágúst, eru eftir af tímabilinu ásamt þeim dögum sem kunna að vera eftir í júní.