Hafrannsóknarstofnun hefur lokið mælingum fyrir burðarþolsmat í Eyjafirði en matinu sjálfu er ekki lok. Sama gildir fyrir Mjóafjörð eystri og Norðfjarðarflóa.
Þetta kemur fram í svari Ragnars Jóhannssonar, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknarstofnun við ítrekaðri fyrirspurn frá Bæjarins besta um hvar unnið hafi verið að burðarþolsmati fyrir 94 m.kr. styrk frá Umhverfissjóði sjókvíaeldis sem fékkst 2018.
Stofnunin sótti um styrk og fékk til þess að meta burðaþol fjarða og sjókvíaeldissvæða.
Spurningu um það hvernig styrknum hefði verið varið svaraði stofnunin með því að senda sundurliðun kostnaðar upp á 87 milljónir króna:
Flokkur | Sum of Kostnaður |
HAFRO Afnotagjöld | 197.810 |
HAFRO Almennar rekstrarvörur | 45.200 |
HAFRO Bækur, ritföng og fl. | 140.162 |
HAFRO Blikk- og vélsmiðjur | 27.182 |
HAFRO Byggingavörur almennar | 29.043 |
HAFRO Eignakaup | 44.120.195 |
HAFRO Ferðir, uppihald | 1.162.426 |
HAFRO Fundir, námskeið, risna | 65.127 |
HAFRO Gengistap, endurmat | 0 |
HAFRO Leigugjöld | 86.745 |
HAFRO Notkun véla og flutn.tæk | 359.927 |
HAFRO Orkugjafar | 918.103 |
HAFRO Prentun, póstur, flutn. | 1.187.163 |
HAFRO Sérfræðiþjónusta I | 278.134 |
HAFRO Sími | 237.017 |
HAFRO Sölu- og þjónustugjöld | 6.125 |
HAFRO Tekjur | 0 |
HAFRO Varahlutir og viðhaldsv. | 967.864 |
HAFRO Verkfæri | 88.770 |
HAFRO Verkfæri og áhöld | 7.042 |
HAFRO Verkkaup III | 0 |
HAFRO Vinnukostnaður | 35.586.127 |
HAFRO Vörur til rannsókna | 130.819 |
HAFRO Vörur til útgerðar | 917.253 |
HAFRO Ýmis tæki | 438.554 |
HAFRO Ýmsar sérgreindar vörur | 2.430 |
Samtals | 86.999.218 |
Inn í þessa tölu vantar skipatíma sem er bókfærður annars staðar.
Mælingum lokið í Eyjafirði.
Ekki kom fram fyrra í svari Hafrannsóknarstofnunar hvaða hafsvæði var tekið til burðarþolsmats og var þá ítrekuð spurningin um það hvort Eyjafjörður hafi verið svæðið sem metið var. Þeirri spurninu hefur nú verið svarað.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var inntur eftir því á opnum fundi í Eyjafirði um fiskeldi hvort burðarþolsmat væri tilbúið og samkvæmt heimildum Bæjarsins besta fullyrti ráðherrann að svo væri ekki.
Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akvafuture segir að burðarþolsmat fyrir Eyjafjörð sé tilbúið hjá Hafró. Akvafuture hefur sóst eftir leyfi til fiskeldis í Eyjafirði í hálflokuðum kvíum.
Jón Örn Palsson, fiskifræðingur á Tálknafirði sem einnig hefur unnið að því verkefni segir að árin 2018 og 2019 hafi Hafrannsóknastofnun unnið miklar sjófræðimælingar i Eyjafirði til þess að meta burðarþol til fiskeldis.
Samkvæmt lögum sem sett voru í fyrra er burðarþolsmat fyrir einstök svæði ekki unnið nema ráðherra kalli eftir því. Málið virðist því nú vera í þeirri stöðu að burðarþolsmatið sé langt komið fyrir ofangreind þrjú svæði en verði ekki klárað nema ráðherrann óski eftir því.