Hafin er vinna við ofanflóðavarnir fyrir ofan Mýra, Hóla og Urðargötu á Patreksfirði, og hluti af þeirri vinnu felst í að færa lægstu trén í hlíðinni á önnur svæði til að stuðla að því að þau geti haldið áfram að vaxa í Vestfirsku lofti.
Stærð þeirra trjáa sem fyrirhugað er að flytja er um 2,5-3 metra hæð og lægri.
Einn af þeim möguleikum sem unnið er með, er að aðstoða fólk sem hefur áhuga á að koma þessum trjám í fóstur á örugg svæði, eða setja þessi tré í eða við garða til að flýta fyrir skjólmyndun.
Ef einstaklingar eða fyrirtæki hafa áhuga á að fá tré er best að setja sig í samband við Geir Gestsson, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Unnið verður í því að staðsetja tré með rótarkerfi við hreppsgirðinguna sem staðsett er við endann á Mýrum og munu aðilar geta sótt tré þangað.