Um þessar mundir eru sjötíu ár síðan Björgunarskipið María Júlía kom til landsins og sextíu ár síðan Varðskipið Óðinn kom.
Varðskipið Óðinn sigldi út úr Reykjavíkurhöfn í fyrsta skipti í meira en áratug í gær þegar prufað var að ræsa vélar þess að nýju. Sjálfboðaliðar hafa lagt mikla vinnu á sig að undanförnu til að koma skipinu í gang að nýju.
Varðskipið Óðinn er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík og kom til safnsins árið 2008.
Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20. öld. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa, staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum voru þó togvíraklippurnar, sem sjá má á afturdekki skipsins. Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip.
Hollvinasamtök Óðins voru stofnuð 26. október 2006 í Sjóminjasafninu í Reykjavík. Björgum Óðni, sögunnar vegna eru einkunnarorð þessara samtaka.
María Júlía er varðskip og björgunarskip sem Landhelgisgæslan notaði frá 1950 til 1969. Skipið var smíðað úr eik í Frederikssund í Danmörku og var heildarkostnaður 1,5 milljónir króna en um 300.000 af þeirri upphæð voru framlög frá slysavarnardeildum á Vestfjörðum.
Saga Maríu Júlíu er ekki síður glæsileg en saga Óðins. María Júlía tók þátt í stríði um landhelgina og talið er að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns.
Í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir fiskifræðinga og fyrir sjómælingar. Skipið var því fyrsti vísir að hafrannsóknarskipi á Íslandi.
Á meðan Óðinn siglir um sundin blá er María Júlía vinafá bundin við bryggju á Ísafirði í heldur dapurlegu ástandi.
Óskandi væri að María Júlía eignaðist hollvinasamtök sem gætu bjargað skipinu sögunnar vegna.