Varðskipið Týr lagðist að bryggju í Reykjavík klukkan 10 í morgun eftir eina lengstu ferð varðskips hér við land hin síðari ár.
Þegar skipið hélt til eftirlits í byrjun mars var gert ráð fyrir því að skipið yrði á Íslandsmiðum í þrjár vikur, venju samkvæmt, en vegna aukinna varúðarráðstafana var ákveðið að lengja ferðir varðskipa Landhelgisgæslunnar til að tryggja að hægt væri að sinna órofnu eftirliti á hafinu umhverfis landið.
Thorben Lund, skipherra á Tý, segir ferðina hafa gengið vel og fjölbreytt verkefni komið á borð áhafnarinnar.
Við komuna til Reykjavíkur í morgun stillti áhöfnin á Tý sér upp fyrir myndatöku ásamt Jóni Marvin Pálssyni og Ragnari Marel Georgssyni, liðsmönnum, séraðgerðasveitar, sem tóku á móti skipinu á Miðbakka.
Varðskipið Þór lónaði í gærdag á Ísafjarðardjúpi, en í öryggisskyni hefur skipið verið við Vestfirði síðustu tvær vikur. Síðdegis í gær var vindur í Djúpinu 50-60 hnútar og skyggni sama og ekkert, en skjól og lítill sjór í mynni Jökulfjarða og nákvæmlega þar var Þór.
Á laugardag fór skipið inn til Ísafjarðar að sækja sýni vegna kórónuveirunnar sem voru svo flutt á Arngerðareyri innst í Djúpinu. Þar sigldi skipið eins nærri landi og komist varð. Svo fór mannskapur á léttabát að bryggju þar sem björgunarsveitarmenn tóku á móti sýnunum, sem síðan voru flutt áfram suður til Reykjavíkur til frekari rannsókna.