Haldinn verður upplýsingafundur um stöðuna í Ísafjarðarbæ vegna Covid-19 mánudaginn 20. apríl 2020 kl. 15:00.
Fundurinn verður sendur beint út á Facebook (https://www.facebook.com/isafjardarbaer/) og þar verður hægt að senda inn fyrirspurnir.
Best er þó að senda spurningar inn fyrirfram því þá er hægt að undirbúa svör betur.
Dagskrá
Framsöguerindi:
Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri lögreglunnar á Vestfjörðum
Umræður og fyrirspurnir