Ísafjarðarlína sló út kl. 17:25.
Í tillkynningu frá Orkubúi Vestfjarða segir að ástæða útleysingar megi rekja til spennivirkis í Breiðadal. Sennileg orsök er selta á búnaði.
Vinnuflokkur býr sig undir að fara á staðinn og kanna aðstæður.
Varaafl er komið í gang á Flateyri en straumleysi verður í sveitinni í Önundarfirði og hluta eyrarinnar.
Uppfært kl 23:05. Spenna er komin á á virkið í Breiðadal samkvæmt tilkynningu Orkubúsins.