Á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík í fyrradag voru fulltrúar 10 opinberra aðila sem kynntu áætlaðar verklegar framkvæmdir á árinu. Um er að ræða samtals 132 milljarða króna framkvæmdir.
Vegagerðin er með hæstar áætlar framkvæmdir að upphæð tæpar 39 milljarða króna sem er tæplega 17 milljörðum króna meira en kynnt var á síðasta ári. Isavia gerir ráð fyrir framkvæmdum fyrir 21 milljarð króna og Reykjavíkurborg fyrir tæplega 20 milljarða króna. Í fyrsta sinn á þessu þingi eru sérstaklega kynntar verklegar framkvæmdir vegna Landspítala sem eru áætlaðar tæplega 12 milljarðar króna. Þá fyrirhugar Landsnet að bæta við framkvæmdir frá síðasta ári sem nemur 2,5 milljörðum króna.
Áætlaðar verklegar framkvæmdir opinberra aðila
Vegagerðin | 38,7 |
Isavia | 21,0 |
Reykjavíkurborg | 19,6 |
Landspítalinn | 12,0 |
Landsnet | 11,7 |
Framkvæmdasýslan | 9,3 |
Veitur | 8,8 |
ON | 4,5 |
Landsvirkjun | 4,1 |
Faxaflóahafnir | 2,2 |
Alls | 131,9 |