Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um náttúruvernd. Í frumvarpinu er lögð til lagfæring á skilgreiningu hugtaksins „óbyggt víðerni“.
Eins og ákvæðið er orðað í lögum um náttúruvernd, er ekki unnt að friðlýsa svæði undir friðlýsingarflokknum óbyggð víðerni ef mannvirki eru innan við 5 km fjarlægð frá mörkum svæðis þó svo að þau sjáist ekki vegna landfræðilegra aðstæðna.
Í frumvarpi þessu er lagt til að skilgreining hugtaksins „óbyggt víðerni“ verði breytt á þann hátt að mögulegt sé að taka tillit til landfræðilegra aðstæðna við skilgreiningu á óbyggðum víðernum, eins og upphaflega var gert ráð fyrir í frumvarpi til núgildandi laga um náttúruvernd. Með frumvarpinu eru því lagðar til lagfæringar á náttúruverndarlögum til að skýrt sé hvað teljist óbyggð víðerni.
Umsögnum um frumvarpið skal skilað í samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til þess til 11. febrúar næstkomandi.
Frumvarpið sem umhverfisráðherra ætlar að leggja fram er eftirfarandi:
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni).
Frá umhverfis- og auðlindaráðherra.
1. gr. Á undan orðunum „í a.m.k. 5 km fjarlægð“ í 19. tölul. 5. gr. laganna kemur: að jafnaði.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.