Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, óska eftir tilboðum í leigu á netabátum til að
stunda netaveiðar í rannsóknar- og gagnaöflunarskyni á sex rannsóknarsvæðum vegna verkefnisins „Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum – Netarall 2020“.
Einnig er um að ræða merkingar á þorski í einn dag og prófanna á spendýrafælum á einu rannsóknasvæði.
Leiðangrar fara yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl.
Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum. Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks er fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.
Útboðsgögn eru á vef Ríkiskaupa.