Samninganefnd Sjómannasambands Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að láta fara fram óháða rannsókn á söluvirði afurða í íslenskum sjávarútvegi.
Miðað við fréttir undanfarinna mánaða má ætla að milliverðlagning á sjávarfangi sé mjög algeng.
Ætla má að íslenskt þjóðfélag verði af gríðarlegum fjármunum ef rétt reynist. Það er því skýlaus krafa samninganefndar Sjómannasambands Íslands að fram fari vönduð, óháð opinber rannsókn á endanlegu söluvirði útflutnings sjávarafurða og hvað af raunverulegum verðmætum skilar sér til Íslands.
Einnig áréttar samninganefnd Sjómannasambands Íslands áhyggjur sínar af endurvigtunarleyfum fiskvinnsluhafa á Íslandi.
Ítrekað hefur verið sýnt fram á mismun á ísprósentu. Mjög mikill munur hefur verið staðfestur eftir því hvort Fiskistofa stendur yfir vigtun eða ekki.
Í þessum málum báðum eru gífurlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bæði sjómenn og þjóðfélagið í heild sinni.