Indriði á Skjaldfönn horfði á landsleikinn í handbolta þar sem Íslendingar öttu kappi við frændur okkar og vini, Dani og unnu 31 : 30.
Sigurreifur orti Indriði að leik loknum :
Þó að Danir verðust vel
víst má færa í letur,
Aroni það eigna tel
að okkur veitti betur.