Tónlistarfélag Ísafjarðar fær til sín kvartettinn Paradox með einn fremsta
djassgítarleikara landsins, Andrés Þór, í broddi fylkingar. Jazzinn verður í Hömrum á Ísafirði á fimmtudaginn 14. nóvember kl 20.
Paradox mun leika lög af glænýjum diski Andrésar. Á tónleikunum má m.a. heyra
frumsamda jazzópusa sem sækja áhrif sín úr ýmsum áttum, allt frá þjóðlagatónlist
til skammtafræði.
Ásamt Andrési skipa kvartettinn píanóleikarinn Agnar Már Magnússon,
kontrabassaleikarinn Þorgrímur Jónsson og
trommuleikarinn Scott McLemore. Þeir félagar hafa starfað lengi saman
við ýmis ólík verkefni.
Nánari upplýsingar um listamennina má sjá á facebook síðu félagsins eða undir
AÐGANGUR ÓKEYPIS, frjáls framlög.