Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýsköpunarráðherra kynnti í gær nokkrar aðgerðir í þágu nýsköpunar.
Viðamesta aðgerðin er að settur verður á fót frumkvöðlasjóðurinn Kría sem hefur þann tilgang að vera hvati vísifjárfestinga (Venture Capital/VC). Í fjármálaáætlun ríkissjóðs er gert ráð fyrir samtals 2.5 milljarði á næstu þremur árum til að fjármagna sjóðinn.
Önnur markverð nýjung er svonefnd hugveita , sem skipuð verður frumkvöðlum og nýsköpunar- og fjármálaráðherra, samtals 12 mönnum.
Verkefni hugveitunnar verða að leggja reglulega til ábendingar, tillögur eða vandamál sem þarfnast úrlausna á málefnasviðinu og að veita endurgjöf á áætlanir og verkefni ráðuneytanna sem snerta málaflokkinn, bæði ný verkefni, og núverandi umhverfi.
Fyrsti fundur hugveitunnar verður í janúar 2020.
Meðal þeirra sem ráðherra skipaði til setu í hugveitunni er Guðmundu Fertram Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Kerecis.
Aðrir eru:
- Ari Helgason, fjárfestir hjá Index Ventures
- Ágústa Guðmundsdóttir, meðstofnandi Zymetech og þróunarstjóri fyrirtækisins
- Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fjárfestir og stjórnarmaður í ýmsum fyrirtækjumog fyrrum framkvæmdastjóri Actavis
- Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri Atmonia
- Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og fyrrum stjórnandi hjá Google
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Kerecis
- Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, meðstofnandi og rekstrarstjóri Teatime Games, áður rekstrarstjóri QuizUp, og meðstofnandi & framkvæmdastjóri Clara
- Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Avo
- Tryggvi Þorgeirsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Sidekick Health
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect