Tekjur af komu skemmtiferðaskipa í Patrekshöfn fara hratt vaxandi að sögn Elfars Steins Karlssonar, hafnarstjóra. Á þessu ári voru tekjurnar 6 milljónir króna og 26 sinnum komu skemmtiferðaskip til Patreksfjarðar í ár. Í fyrra voru tekjurnar 3,2 milljónir króna og 2017 aðeins 102 þúsund krónur.
Elfar Steinn segir að á næsta ári stefni í tekjuaukningu þrátt fyrir fækkun skipakoma. „Það skýrist af því að á núlíðandi ári var tiltölulega lítið skip með margar skipakomur (um 50 farþega skip), en útlit er fyrir fjölgun á skipum fyrir farþega á bilinu 150-600 farþega.“