Sjófuglar sem dvelja mestan hluta æfi sinnar á sjó koma í land til að verpa og hópast þá gjarnan saman í byggðir. Sjófuglabyggðir við strönd Íslands eru með þeim stærstu í heiminum og áætlar Náttúrufræðistofnun Íslands á vef sínum (2019) að á Íslandi verpi um 10 milljón fuglapör og að 7,5 milljón þeirra séu sjófuglar. Fuglavernd hefur tekið saman upplýsingar um 37 sjófuglabyggðir við Ísland því búsvæðavernd er ein af meginstoðum í stefnu og starfi Fuglaverndar. Þessar sjófuglabyggðir eru öll alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði (IBA svæði) oftast vegna fjölda þeirra sjófugla sem reiða sig á þau.
Fuglavernd hefur einnig það hlutverk að halda utanum og skrá alþjóðlegra mikilvæg fuglasvæði (IBA) á Íslandi fyrir hönd Birdlife International en um þessar mundir eru 99 IBA svæði skráð.
Ábyrgðartegundir
Þegar stór hluti heims- eða evrópustofns ákveðinnar fuglategundar verpir við strendur Íslands eða hefur hér viðkomu á leið sinni til eða frá varpstöðvum, þá kallast sú fuglategund ábyrgðartegund. Það eru fuglategundir sem byggja að mestu leyti afkomu sína á veru sinni hér þó þær dvelji annarsstaðar stóran hluta ársins. Þessi skilgreining á ábyrgðartegundum á við um flesta sjófuglanna okkar. Þeir sjófuglar sem teljast til að mynda til ábyrgðartegunda okkar Íslendinga eru: Fýll, rita, langvía, stuttnefja, álka, súla, lundi, skrofa, stormsvala, sjósvala, toppskarfur, æður, teista, kjói, skúmur, hvítmáfur, svartbakur og kría. Þessi upptalning miðar við að a.m.k. 20% af evrópustofni þessara tegunda verpi hér eða komi hér við á ferðum sínum.
Sjófuglabyggðir við Ísland – vefurinn
Vefurinn Sjófuglabyggðir við Ísland sýnir á korti staðsetningu byggðarinnar og farið er réttsælis hringinn í kringum landið. Byrjað er við Látrabjarg sem er eitt stærsta fuglabjarg heims. Hverju svæði er lýst með mynd og texta. Þá er fjallað um fuglategundir svæðisins, farið yfir stöðu tegundanna á válista fugla á Íslandi, vernd svæðisins og nytjar og loks eru tenglar á IBA skrá BirdLife International fyrir alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði sem og tengill á skrá Náttúrufræðistofnunar Íslands um mikilvæg fuglasvæði.
Markmið vefsins er vera ítarefni fyrir kennslu og fræðslu, fyrir öll skólastig og almenningsfræðslu. Valin var myndræn framsetning og byggt er á gögnum færustu vísindamanna okkar.
Sjófuglabyggðir við Ísland er aðgengilegur gegnum vef Fuglaverndar: https://fuglavernd.is/busvaedavernd/sjofuglabyggdir/