Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga leggur fyrir þingið tillögu um raforkumál. Þar segir að hvatt sé til þess að hafin verði vinna við mótun langtímaorkustefnu fyrir Ísland, en stefnuleysi stendur þróun á Vestfjörðum fyrir þrifum.
Í tillögunni segir að fyrir liggi að aukin eftirspurn verður eftir orku á Vestfjörðum vegna fjölbreyttrar starfsemi, svo sem kalkþörungavinnslu, fiskeldis, ferðaþjónustu og fjölgunar íbúa samhliða auknum umsvifum í atvinnulífi og að slík uppbygging er háð því að afhendingaröryggi og aðgangur að aukinni orku sé fyrir hendi.
„Haustþing fagnar því áformum um aukna raforkuframleiðslu á Vestfjörðum með sjálfbærri nýtingu vatns og vinds. Haustþing fagnar því að nýr tengipunktur1 raforku í Ísafjarðardjúpi sé komin á framkvæmdaáætlun Landsnets. Hér hefur verið komið í farveg baráttumáli Vestfirðinga um hringtengingu flutningskerfis raforku á Vestfjörðum eða svokölluð N-1 tenging Bein áhrif þessa verkefnis verða úrbætur á afhendingaröryggi raforku á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum með nýjum flutningslínum, en óbeint inn á sunnanverða Vestfirði með aukinni flutningsgetu. Því þarf samhliða að auka raforkuöryggi á sunnanverðum Vestfjörðum samkvæmt tillögu í langtímaáætlun Landsnets um uppbyggingu flutningskerfis með raflínum og sæstrengjum. Haustþing hvetur til þess að afhendingaröryggi á sunnanverðum Vestfjörðum verði forgangsmál á næstu árum og að tekin verði ákvörðum um leiðir til úrbóta sem fyrst.“