Knattspyrnulið Vestra vann sér sæti í fyrstu deildinni á næsta leiktímabili með stórsigri á Tindastól frá Sauðárkróki í dag á Torfnesvelli.
Vestri sigraði 7:0 eftir að hafa leitt 4:0 í hálfleik. Hammed Obafemi Lawal skoraði eftir aðeins þriggja mínutna leik. Isaac Freitas Da Silva skoraði annað mark á 20. mín., gestirnir skoruðu sjálfsmark á 32. mín og Zoran Plazonic bætti við því fjórða á 34. mínútu.
Í síðari hálfleik skoruðu Þórður Gunnar Hafþórsson, Joshua Ryan Signey og Daníel Agnar Ásgeirsson.
Það lá vel á Bjarna Jóhannssyni, þjálfara liðsins þegar Bæjarins besta heyrði í honum. „Þetta var þrælöruggt allan tímann og við skoruðum strax í byrjun leiks.“ sagði Bjarni.
Ekki er búið að semja við hann um þjálfun næsta sumar en Bjarni sagðist eiga von á fundum í næstu viku. Ofar var honum í huga framtíð vallarins og sagðist vonast til að það skýrðist fljótlega svo óvissa um vallastræði myndi ekki trufla næstu leiktíð og undirbúning að henni.