Mánudaginn 23. september nk. er öllum foreldrum barna, sérstaklega foreldrar barna á miðstigi og unglingastigi grunnskólanna og ungmenna á framhaldsskólaaldri, boðið á fund. Þar verða fulltrúar frá Rannsóknir og greining ehf. og Heimili og skóla.
Ætlunin er að kynna nýlegar niðurstöður rannsókna á högum ungmenna á Íslandi og eins hér á svæðinu. Þar verður komið inn á vímuefni og annað sem foreldrum er nauðsynlegt að fá vitneskju um. Eins hvaða aðferðir hafa gefist vel í foreldrauppeldi.
Fundurinn verður á sal Grunnskólans á Ísafirði.
Það er Vá Vest hópurinn sem boðar til fundarins.