Aðalfréttir dagsins eru af dánarvottorðinu af Okinu, hinum horfna jökli, sem fest var á stein í rúmlega 1000 metra hæð og um 100 manns voru viðstaddir.
Jón Atli Játvarðsson, Reykhólum hafði þetta um málið að segja.
Finn ég nú ógleði upp í kok
engist í mínum raunum,
skelf þá við napurt skýjafok
en skáldið fær hlut í launum,
minningarskildi er skellt á Ok
skrælnað og allt í kaunum.
Dett ég um beyglað dósarlok
af dagsgömlum Orabaunum.