Íslendingar eru allir meiri og minni veðurspekingar. Veðrið er daglegt umræðuefni okkar. Stundum oft á dag. Hvað sagði veðrið? Hverju spáir hann? Hann sagði ekki þetta í sjónvarpinu í gær! Það er meira að segja stundum svo að hver og einn heldur með sínum hitamæli. Og ekkert múður! Oft gleymist að fyrir utan veðurlýsingar er um spár veðurfræðinga að ræða. Veðurspár.
Guðrún Gauksdóttir, formaður Æðarræktarfélags Íslands, talaði um tíðarfarið vorið og sumarið 2018 á aðalfundi þessara ágætu samtaka í Rvk. 10. nóv. 2018. Þau orð Guðrúnar skulu rifjuð hér upp til gamans:
„Fremur svalt var í veðri í maí um landið suðvestanvert á meðan hlýtt var á Norðaustur- og Austurlandi. Mjög hlýir dagar voru í lok mánaðar á Norðausturlandi. Mánuðurinn var óvenju úrkomusamur, þá sérstaklega vestanlands. Ný mánaðarúrkomumet voru sett á nokkrum stöðvum í maí. Júnímánuður var óvenju þungbúinn um landið sunnan- og vestanvert. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa ekki mælst eins fáar síðan árið 1914. Úrkoma var mikil í þessum landshlutum og veður fremur svalt. Á austanverðu landinu var aftur á móti hlýtt og sólríkt. Hiti fór þar margoft yfir 20 stig. Sunnan- og suðvestanáttir voru ríkjandi. Veðurfarið hafði víða slæm áhrif á dúntekju Vestanlands en heildardúntekja á landinu var ágæt þar sem vel viðraði austan og norðaustanlands.“
Í sumar hefur þetta verið alveg þveröfugt. En skyldi hann nú rigna eitthvað að gagni fyrir jörðina næstu daga?
H. S.