Þeir Vestfirðingar Indriði a Skjaldfönn og Jón Atli, Reykhólaskáld takast á um Hvalárvirkjun og sjá hvor sína hlið málsins.
Fyrst Jón Atli stuðningsmaður virkjunar sem sér fegurðina í nýju lónunum á Ófeigsfjarðarheiðinni:
Byggð upp fögur fjallalón,
hvar flettist land í sundur.
Umferð ljúf og ekkert tjón
hvar áður týndist hundur.
Indriði er efasemdarmaður um málið og hann lýsir vegabótunum í Ingólfsfirði því svo:
Að Verstaverki gert skal gys
með gröfur,fum og læti.
Hæg er leið til helvítis,
hallar undan fæti.