Meðalatvinnutekjur á Vestfjörðum voru á síðasta ári 4.882.000 krónur. Hæstar voru meðalatvinnutekjurnar á höfuðborgarsvæðinu 5.398.000 kr. Munurinn er 516 þúsund krónur eða 10%. Þetta kemur fram í nýbirtri ársskýrslu Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir 2018.
Höfuðborgarsvæðið og Austfirðir skera sig úr fyrir háar meðalatvinnutekjur. Lægstar eru meðaatvinnutekjurnar á Norðurlandi vestra, aðeins 4,5 mkr sem er 17% undir höfuðborgarsvæðinu.
Tölur fyrir 2018. | |||||
Heimild: Ársskýrsla 2018 | Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra | |||||
Landssvæði | Meðalatvtekjur | ||||
Höfuðborgarsvæðið | 5.398 | 100 | |||
Suðurnes | 4.675 | 86,6 | |||
Vesturland | 4.929 | 91,3 | |||
Vestfirðir | 4.882 | 90,4 | |||
Norðurland vestra | 4.503 | 83,4 | |||
Norðurland eystra | 4.784 | 88,6 | |||
Austurland | 5.214 | 96,6 | |||
Suðurland | 4.655 | 86,2 |