Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 400 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilum um land allt. Úthlutunin er í samræmi við tillögu stjórnar sjóðsins.
„Það er kraftur í uppbyggingu þessarar mikilvægu þjónustu við aldraða. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á síðustu misserum sem bæta aðbúnað og aðstæður fólks sem ekki er fært um að búa lengur heima, samhliða nýframkvæmdum. Þá er ekki síður mikilvæg sú uppbygging sem felst í fjölgun dagdvalarrýma, því í þeim felst þjónusta sem tvímælalaust lengir möguleika aldraðra til að búa heima þótt þeir þurfi mikinn stuðning. Og það er jú það sem flestir vilja allra helst“ segir heilbrigðisráðherra.
Af einstökum framlögum rennur stærsta fjárhæðin til viðbyggingar eldhúss Hrafnistu og endurnýjun búnaðar þar, en þar verður framleiddur matur fyrir íbúa allra Hrafnistuheimilanna. Sömuleiðis renna framlög til endurnýjunar búnaðar í eldhúsum Eirar og hjá Öldrunarheimilum Akureyrar. Samanlagt eru þetta tæpar 200 milljónir króna.
Ekkert til Vestfjarða
Úthlutunin er sundurliðuð eftir landshlutum og skiptist hún þannig:
Höfuðborgarsvæðið 307.743.685 kr.
Vesturland 65.071.944 kr.
Norðurland 20.403.980 kr.
Austurland 9.669.757 kr.
Suðurland 3.449.041 kr.
Samtals 406.338.407 kr.
Í greinargerð til undirbúnings fjármálaáætlunar 2019-2023 sem dagsett er 1. mars 2018 kemur fram að hlutfall aldraðra í hjúkrunarrúmum og á biðlista er hærra á Vestfjörðum en á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Þar kemur einnig fram að það vantaði 12 hjúkrunarpláss á Vestfjörðum, reiknuð þörf á árinu 2023 er 69 pláss en þau voru þá 57.