Þegar tónlistarhátíðin á Þingeyri stóð sem hæst í gærkvöldi sigldi fallegur bátur inn fjörðinn í kvöldsólinni og lagðist að bryggju.
Þarna var á ferð báturinn Haukur HF 50, dragnótabátur sem er 69 brúttótonn, skráður í Hafnarfirði. Haukur HF 50 er smíðaður 1972 í Bátalóni í Hafnarfirði.
Á bátnum er lítilsháttar kvóti af rækju við Snæfellsnes.
Eigandi er Björg Seafood ehf, fyrirtæki sem skráð er á Akureyri.