Í gær lauk hlaupahátíðinni á Vestfjörðum með keppni í Vesturgötuhlaupinu í blíðskaparveðri. Alls luku 218 keppendur hlaupinu í dag og er það metþátttaka.
Sigurvegarar í 45 km hlaupinu voru þau Sigurjón Ernir Sturluson og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, en í 24 km hlaupinu voru það þau Vilhjálmur Þór Svansson og Elín Edda Sigurðardóttir sem hlupu hraðast.
Hlynur Guðmundsson og Þórdís Kristinsdóttir urðu svo hlutskörpust í 10 km hlaupinu,
Þríþrautakapparnir kláruðu einnig sína þraut en það voru þau Ingvi Jónasson og Berglind Björg Harðardóttir sem sigruðu en keppnin var mjög jöfn í ár en alls kláruðu 26 einstaklingar þríþrautina sem er met.
Alls voru um 600 einstaklingar skráðir til keppni um helgina og voru margir þeirra skráðir í fleiri en eina grein og telst aðstandendum hátíðarinnar til að þetta sé stærsta hátíðin til þessa.
Myndir: Hlaupahátíð á Vestfjörðum og Eggert Stefánsson.