Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt erindi frá Hverfisráði Önundarfjarðar um ráðstöfun framkvæmdafjár ársins. Til ráðstöfunar er 1,6 milljón króna og óskað var eftir því að gera timburpall og skjólvegg við ærslabelginn á Flateyri.
Stærð pallsins er áætlaður 5m X 5m og skjólgirðing í U eftir pallröndinni.
Miða er við að fengin verði verktaki í allt verkið og þá er kostnaðaráætlunin þannig:
Áætlaður kostnaður:
Eining Verð Samtals
Jarðvinna Heild 300.000,- 300.000,-
Pallur 25m² 29.500,- 737.000,-
Skjólgirðing 15m 40.000,- 600.000,-
1.637.000,-