![heidra_IMG_1619](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/06/heidra_IMG_1619-696x464.jpg)
Á sjómannadaginn voru þrír sjómenn heiðraðir í Bolungavík. Fór athöfnin fram í Hólskirkju og það var hin aldna sjómannskempa Elías Ketilsson sem veitti heiðursmerkin fyrir hönd Sjómannadagsins í Bolungavík.
Þeir sem voru heiðraðir voru Sveinbjörn Ragnarsson og bræðurnir Benedikt Guðmundsson og Páll Guðmundsson. Þeir hafa allir stundað sjómennsku í nærri hálfa öld og einnig gert út eiginn bát um lengri tíma.