Púkamótið hefst á Ísafirði á föstudaginn og keppendur eru farnir að undirbúa sig af kappi.
Meðal atriða verður vítakeppni þar sem skorað er á ýmsa liðtæka knattspyrnumenn. Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skorar á Jón Pál Hreinsson, bæjarstjóra í Bolungavík.
Í morgun náðist þessi mynd af Guðmundi við æfingar og verður ekki annað séð en að Bolvíkuringurinn sé með einbeitinguna í lagi og þar af leiðandi býsna sigurstranglegur.
Vegna anna Bjarna Jóhannssonar þjálfara Vestra mun Jóhann Torfason skora á Harald Leifsson í vítakeppninni.
Aðstandendur mótsins vilja minna á skráninguna á mótið sem stendur yfir og sérstaklega minna Ísfirðinga á að skrá sig.