Bolungarvíkurkaupstaður heldur áfram með almennt umhverfisátak í bænum undir heitinu Fögur er Víkin og vef-millu-merkinu #fogurervikin.
Hluti átaksins er fyrirhuguð hópavinna sjálfboðaliða við upprætingu kerfils í bæjarlandinu
- miðvikudaginn 26. júní kl. 17-19,
- fimmtudaginn 27. júní kl. 17-19 og
- föstudaginn 28. júní kl. 17-19.
Mæting við sundlaug og í lokin á föstudaginn verða grillaðar pylsur í boði bæjarins.
Upprifinn kerfil má skilja eftir í böndum eða pokum á gangstéttum og starfsfólk bæjarins mun fjarlægja hann.
Starfmenn Bolungarvíkurkaupstaðar hafa tekið höndum saman um að gera bæinn eins snyrtilegan og mögulegt er og birt myndir á vefnum undir millumerkinu #fogurervikin.
Sveitafélagið hvetur bæjarbúa að gera slíkt hið sama og líta í kringum sig eftir veturinn, snyrta og laga það sem betur má fara.
Gaman væri ef bæjarbúar gætu tekið fyrir-og-eftir-mynd og sett innlegg á samfélagsmiðla undir myllumerkinu – #fogurervikin – eða bara fallega mynd af bænum nú eða húsinu sínu.