Hinn 25. maí nk. verður Sjálfstæðisflokkurinn 90 ára, en flokkurinn var stofnaður með sameiningu Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins þann dag árið 1929.
Allar götur síðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið stærsta umbótaaflið í íslensku samfélagi segir í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Í tilefni af þessu skipaði miðstjórn Sjálfstæðisflokksins afmælisnefnd sem nú hefur mótað hátíðardagskrá fyrir næstu mánuði til að halda upp á tímamótin, sjá hér að neðan. Í nefndinni eiga sæti: Aldís Hafsteinsdóttir, Birgir Ármannsson, Davíð Snær Jónsson, Einar K. Guðfinnsson, Halldór Blöndal, Kjartan Gunnarsson, Nanna Kristín Tryggvadóttir, Sigríður Svavarsdóttir og Sólveig Pétursdóttir.
Haldið verður upp á afmælið víðs vegar um land. Í Reykjavík verður afmælinu fagnað með veglegri fjölskylduhátíð við Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 11-13 þar sem boðið verður upp á veitingar, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ávarpar gesti, Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur leikur nokkur lög, leikhópurinn Lotta mætir á svæðið o.fl.
Afmælisins verður minnst á Vestfjörðum með samkomu á Ísafirði:
Fulltrúaráðið á Ísafirði býður í dögurð (morgunbrauð og afmælisköku) 25. maí kl. 11-13 í Edinborg á Ísafirði. Tónlistaratriði og ræðumenn af eldri kynslóðinni rifja upp gamla tíma, annar fæddur 1927 og hinn 1932 og bæði virk í starfinu enn.
Í Reykjavík verður afmælinu fagnað með veglegri fjölskylduhátíð við Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 11-13 þar sem boðið verður upp á veitingar, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ávarpar gesti, Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur leikur nokkur lög, leikhópurinn Lotta mætir á svæðið o.fl.