Á hverju ári eru valdir krakkar úr félögum landsins til að taka þátt í svokallaðri Hæfileikamótun KSÍ. Það eru æfingabúðir sem sambandið heldur á Vesturlandi/Vestfjörðum; Norðurlandi, Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu og er ætlað að gefa þjálfurum yngri landsliða Íslands í knattspyrnu betri mynd af þeim möguleikum sem þeir eiga í leikmönnum.
Knattspyrnudeild Vestra hefur átt þátttakendur í þessu verkefni frá upphafi. Eftirtaldir leikmenn vor valdir til að fara í hæfileikamótun KSÍ fyrir Vestfirði/Vesturland sem haldin var föstudaginn 26. apríl á Ólafsvík:
Guðmundur Páll Einarsson
Kristinn Hallur Jónsson
Bríet Sigurðardóttir
Birta Kristín Ingadóttir
Sigrún Betanía Kristjánsdóttir
Solveig Amalía Atladóttir
Allir Vestfirðingarnir stóðu sig mjög vel í æfingabúðunum. Nú mun framtíðin leiða í ljós hvort einhver þessarra keppenda muni verða fyrir valinu í yngri landslið Íslands.