Arctic Fish hefur í þessari viku hafið sjóeldisstarfsemi í Patreksfirði og í tengslum við það hafa fjórir Patreksfirðingar hafa bæst við hópinn og heildarfjöldi starfsmanna komnir á sjötta tuginn.
Eftir sem áður verður er stærstur hluti sjóeldisstarfseminnar í Dýrafirði þar sem sjóeldi hefur nú verið stundað með vexti á hverju ári síðan 2009. Í sumar mun fyrirtækið síðan einnig hefja eldi í Tálknafirði sem styður við áframhaldandi uppbyggu fyrirtækisins í árgangaskiptu eldi samkvæmt vottuðum umhverfisstaðli ASC.
Uppbygging sjóeldisins tengist einnig fjárfestingum og uppsetningum á sjóeldisbúnaði og á flugbrautinni í Patreksfirði er verið að setja saman sjókvíar. Einnig heldur uppbygging seiðaeldisstöðvar félagsins í Tálknafirði áfram. Fyrirhugað er að verklok við fyrstu áfangana verði fagnað í haust.
Arnarnes – nýr sjóvinnubátur
Í dag er Arctic Fish að taka á móti nýjum sjóvinnubát til að þjónusta nýju eldisstöðina í Patreksfirði. Báturinn hefur fengið nafnið Arnarnes og verður með heimahöfn á Patreksfirði.
Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish segir að fyrirtækið leggi mikið uppúr því að hafa sem bestan tækjabúnað til að þjónusta ört stækkandi sjókvíaeldi fyrirtækisins með öryggi starfsmanna og fisksins í fyrirrúmi. Arnarnes er 13,5*7,5m tvíbytta smíðuð af Moen Marine í Noregi, báturinn er útbúinn 41 tonmetra marine krana frá Palfinger, auk krana eru tveir koppar, annar 3 tonn og hinn 5 tonn. Báturinn er útbúinn með 2 380hö scania vélum sem koma með gír og skiptiskrúfu frá Nogva, um borð er 24kwa Nanny ljósavél og 50hö bógskrúfa. Í brúnni eru siglingartæki frá Furuno og björgunarbátar koma frá Viking. Um borð er góð aðstaða fyrir áhöfn til að setjast niður , elda og láta fara vel um sig, meðal annars er að sjálfsögðu klósett sturta og verkstæði.