Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson opnaði á laugardaginn sýningu í Gallerí Úthverfu.
Nefnir hann sýningu sína óður til Ísafjarðar og eru verkin málverk og vídeó af per´sonum úr bæjarlífu og sögu Ísafjarðar. Snorri dvaldi í gestavinnustofum ArtsIceland á Ísafirði í tvær vikur í aðdraganda sýningarinnar og er sýningin innblásin af hughrifum og upplifun sem hann varð fyrir á þeim tíma. Um er að ræða sölusýningu og verður hún opin til 26. maí 2019.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/04/IMG_1261-1024x683.jpg)