Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur gengið frá skiptingu á 9.775 milljónum króna milli sveitarfélaga landsins til útgjaldajöfnunar milli þeirra á yfirstandandi ári. Til átta sveitarfélag á Vestfjörðum renna um 1.000 milljónir króna en eitt sveitarfélagið, Árneshreppur, fær ekkert og er í hópi 10 sveitarfélaga sem eins er ástatt um.
Framlögin eru reiknuð út frá íbúafjölda, fjarlægðum innan sveitarfélagsins, fjölda þéttbýlisstaða innan sveitarfélags, snjómokstri og skólaakstri.
Skagafjörður er það sveitarfélag sem hæstu greiðslu fær eða 494 milljónir króna. Næst er Fljótsdalshérað, sem fær 478 milljónir króna og Ísafjarðarbær er í þriðja sæti með 449 milljónir króna.
Framlag til annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum er:
Bolungarvíkurkaupstaður 106,4 milljónir króna
Reykhólahreppur 85,8 m.kr.
Tálknafjörður 28,1 m.kr.
Vesturbyggð 160,3 m.kr.
Súðavík 59,6 m.kr.
Kaldrananeshr. 18,1 m.kr.
Strandabyggð 103,9 m.kr.