Lionsklúbbur Patreksfjarðar afhenti bókasafninu nýlega tækjabúnað fyrir upptökuver að gjöf. Upptökuverið er staðsett í rými tónlistarskólans við hliðina á bókasafninu og er til afnota fyrir alla sem eiga bókasafnsskírteini í gildi á bókasafni Patreksfjarðar eða bókasafni Bíldudals.
Frá þessu er greint á vef Vesturbyggðar.
Upptökuverið hentar fyrir upptökur á hlaðvarpsþáttum, skólaverkefnum, munnlegum heimildum og öðru talmáli. Á bókasafninu er einnig í boði að leigja upptökutæki til að taka með úr húsi og er hægt að vinna efni tekið upp á það tæki í upptökuverinu.
Forstöðumaður bókasafns Patreksfjarðar er Alda Hrannarsdóttir.