Orkubú Vestfjarða og Körfuknattleiksdeild Vestra hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli um stuðning OV við starf deildarinnar, jafnt í yngri flokkum sem í meistaraflokki. Elías Jónatansson, orkubússtjóri, og Ingólfur Þorleifsson, formaður stjórnar Kkd. Vestra, undirrituðu samninginn fyrir heimaleik meistaraflokks karla Vestra og Hamars, sem fram fór í íþróttahúsinu Torfnesi síðastliðið föstudagskvöld.
Stuðningur OV hefur falist í styrk vegna leigu á íbúðarhúsi OV á Ísafirði til deildarinnar, en það hefur hýst yfirþjálfara deildarinnar og fjölskyldu hans auk þess sem 1-2 leikmenn meistaraflokks, sem þjálfa yngri flokka, hafa einnig haft þar búsetu.
Birna Lárusdóttir, formaður barna- og unglingaráðs Kkd. Vestra segir að Orkubúið hafi með myndarlegum hætti stutt við körfuna í bráðum þrjú ár en samningurinn lagði grunninn að þeirri miklu uppbyggingu sem orðið hefur í körfunni á þeim tíma. Hann gerði deildinni kleift að ráða Yngva Pál Gunnlaugsson sem yfirþjálfara, en hann flutti til Ísafjarðar með eiginkonu og þremur ungum börnum haustið 2016. Ásamt stjórn deildarinnar hefur Yngvi byggt upp kraftmikið yngriflokkastarf, bæði drengja og stúlkna, auk þess að móta öflugan meistaraflokk karla, þar sem yngri iðkendur hafa fengið tækifæri til að spreyta sig. Innan tíðar sér deildin einnig fram á að meistaraflokkur kvenna verði að veruleika á nýjan leik en gróska er í stúlknastarfi deildarinnar. Rétt er að nefna að hlutfall kynjanna í iðkendahópum deildarinnar er því sem næst jafnt.
Þá kom það fram hjá Birnu að iðkendur körfunnar koma úr öllum þéttbýliskjörnum á norðanverðum Vestfjörðum, allt frá Þingeyri til Bolungarvíkur og Súðavíkur.
„Stuðningur fyrirtækja og stofnana í héraði við íþróttafélög á borð við Kkd. Vestra er grundvallarforsendan fyrir rekstri félaganna, ekki síst þeirra sem starfrækt eru á landsbyggðinni þar sem fyrirtækjaflóran er ekki jafn fjölbreytt og á suðvesturhorninu. Þess utan er kostnaður vegna mótsferða stór þáttur í rekstri landsbyggðarfélaga og heimilisbókhaldi íþróttaforeldra – og er hann umtalsvert hærri en hjá sambærilegum félögum á höfuðborgarsvæðinu.
Í ljósi þessa er framlag Orkubús Vestfjarða til körfunnar dýrmætt, en það hefur reynst einn af lykilþáttunum í framgangi körfunnar á norðanverðum Vestfjörðum hin síðari ár.“