Matvælastofnun sendi frá sér tilkynningu um innköllun í gær og varar við neyslu á einni lotu af laxa- og rækjusalati frá Sóma ehf. vegna listeríu (Listeria monocytogenes) sem greindist í reglulegu eftirliti fyrirtækisins. Sómi hefur ákveðið að innkalla salatið af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Sómi ehf.
- Vöruheiti: Laxa og rækjusalat
- Strikamerki: 5690596069045
- Umbúðir: Plastbox
- Nettómagn: 200g
- Pökkunardagur: 06.03.2019
- Best fyrir: 16.03.2019
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Verslanir um allt land