Kirkjuþing, sem er æðsta valdastofnun Þjóðkirkjunnar, kom saman til fundar þann 2. og 3. mars. Samþykktar voru tillögur biskupafundar um sameiningu prestakalla bæði í Austurlandsprófastsdæmi og Vestfjarðaprófastsdæmi.
Á Vestfjörðum verða Hólmavíkurprestakall og Reykhólaprestakall sameinuð í eitt prestakall sem mun verða kallað Breiðafjarðar- og Strandaprestakall. Sóknarprestur í hinu nýja prestakalli mun verða sr. Sigríður Óladóttir, sem undanfarin ár hefur verið sóknarprestur á Hólmavík. Stefnt er að því að auglýsa eftir nýjum presti á Reykhólum. Verður það vonandi gert nú í sumar. Í athugun er að reisa nýtt prestssetur á Reykhólum en gamli bústaðurinn mun illa skemmdur sökum raka og myglu.
Í greinargerð með tillögunum kemur fram að tillögurnar séu hluti af stefnu biskupafundar um nýskipan prestakalla á landsvísu. Í þeirri stefnu felst það að horfið verði frá einmenningsprestaköllum, þar sem því verði við komið. Af þessu má draga þá ályktun að innan tíðar verði prestaköllin fjögur á norðanverðum Vestfjörðum sameinuð í eitt prestakall.