Gréta Proppé Hjaltadóttir, leikmaður Vestra, hefur verið valin í U15 kvennalandslið Íslands í körfuknattleik. Alls urðu 18 stúlkur fyrir valinu en íslensku stúlkurnar keppa í tveimur níu manna liðum á Copenhagen Invitational mótinu, sem fram fer í Danmörku dagana 20.-23. júní n.k.
Gréta er búsett á Þingeyri við Dýrafjörð og á því langt að sækja æfingar, sem flestar eru á Ísafirði. Þjálfarar Grétu hjá Vestra eru einkum Yngvi Páll Gunnlaugsson og Nemanja Knezevic.