Franska kvikmyndahátíðin á Ísafirði – Le Grand Bain í kvöld

Í kvöld kl 20 í Ísafjarðarbíó verður sýnd öðru sinni myndin

AÐ SYNDA EÐA SÖKKVA (Le Grand Bain)

Gamanmynd – íslenskur texti
Lengd: 122 mín
Leikstjórn: Gilles Lellouche.
Leikarar: Benoît Poelvoorde, Philippe Katerine, Guillaume Canet, Marina Foïs, Leïla Bekhti og Virginie Efira.

Átta karlar á ýmsum aldri, með skipbrot af öllu tagi á bak við sig, fá aftur trú á lífið þegar þeir æfa samhæft sund undir handleiðslu tveggja fyrrum afrekskvenna í íþróttinni.

Áhorfendur eru orðnir fleiri en fjórar miljónir í Frakklandi og fjölmiðlarnir ljúka upp einum munni: Að synda eða sökkva er gamanmynd ársins í Frakklandi. Enginn má missa af henni!

„Fullkomin mynd fyrir sálina“ (Studio Magazine).

DEILA