Stefanía Ásmundsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur hefur sagt upp störfum og óskað að fá að hætta í byrjun maí. Uppsagnarbréfið var lagt fram í bæjarráði á þriðjudaginn. Ekki er tilgreind ástæða fyrir uppsögninni.
Bæjarstjóra var falið að vinna auglýsingu um starfið og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Bæjarráð bókaði þakkir til Stefaníu fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins í Bolungarvík og óskaði henni velfarnaðar í þeim störfum sem hún mun taka sér fyrir hendur í framtíðinni.