Matvælastofnun hefur nú birt niðurstöðu athugunar sinnar á því atviki þegar gat kom í janúar á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði.
Stofnunin segir í tilkynningu að rétt hafi verið brugðist við tjóni á sjókví Arnarlax í Arnarfirði við Hringsdal sem uppgötvaðist þann 22. janúar sl. Viðbragðsáætlun fyrirtækisins var virkjuð og tilkynning barst Matvælastofnun og Fiskistofu sama dag og tjónið varð. Viðbragðsáætlun var aðgengileg á eldissvæði og starfsmenn eldisins höfðu fengið viðeigandi þjálfun.
Gatið uppgötvaðist við skoðun kafara á nótarpoka. Ekki er vitað hvenær gatið myndaðist en síðasta skoðun kafara áður en tjón kom í ljós var 3. desember. Enginn eldislax hefur veiðst í net sem lögð voru af Arnalaxi í samráði við Fiskistofu.
Þá kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar að „orsök tjónsins reyndist vera galli í framleiðslu nótarpokans sem leiddi til þess að átak á nótarpokann varð rangt. Matvælastofnun gerir kröfu um að fyrirtækið yfirfari verklag til að fyrirbyggja að slíkt endurtaki sig.“