Vestfirðingum fjölgaði um 1% eða 68 manns frá 1. jan 2018 til 1. jan 2019. Mannfjöldinn á Vestfjörðum á nýársdag var kominn aftur yfir 7000 samkvæmt því sem fram kemur á vef Þjóðskrár Íslands. Mest varð fjölgunin í Ísafjarðarbæ. þar fjölgaði íbúum um 91. Næstmest fjölgun varð í Tálknafjarðarhreppi, en þar fjölgaði um 14 manns. Þá fjölgaði um 8 manns í Bolungavík og líka í Súðavík.
Annars staðar á Vestfjörðum fækkaði íbúum. Mest varð fækkunin í Vesturbyggð eða um 26 manns og um 16 manns í Reykhólahreppi. Fækkun varð í öllum sveitarfélögum í Strandasýslum. íbúum fækkaði um 11 manns og eru íbúar sýslunnar nú 592.
Sé breytingin skoðuð hlutfallslega þá varð mest fjölgun í Tálknafjarðarhreppi 6% og 4% í Súðavík. Fækkun varð um 6% í Reykhólahreppi og Kaldrananeshreppi og 3% í Vesturbyggð.
Tölur Þjóðskrár 1.1. 2019 eru bornar saman við tölur Hagstofunnar fyrir 1.1. 2018 í þessum samanburði. Þjóðskrá ber mannfjölda 1.1. 2019 saman við 1. des. 2017 sem er þrettán mánaða tímabil því er sá samanburður ekki notaður. Þá voru íbúar á Vestfjörðum 6.992 en 1.1. 2018 voru þeir 6.994.
Mest varð fjölgunin á Þingeyri sé litið til einstakra þéttbýlisstaða. íbúum fjölgaði úr 244 í 281. Fjölgunin er hvorki meira né minna en 15%.
Athygli vekur nokkur fækkun í Vesturbyggð. Fækkun varð í þorpinu á Patreksfirði um 10 manns en fjölgun á Bíldudal um 9 manns. Ekki eru sundurliðaðar tölur fyrir íbúaþróun í sveitunum á Vestfjörðum, aðeins gefin upp ein tala fyrir þær. Líklega hefur fækkunin í Vesturbyggð komið mest fram í sveitunum meðað við framangreindar upplýsingar.
Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri var innt eftir ástæðum íbúafækkunar um 40 manns í Vesturbyggð sem gert er ráð fyrir í forsendum fjárhagsáætlunar fyrir 2019.
Hún svaraði því til að
„Íbúaspáin var heldur bjartsýn 2018 en flestir urðu íbúar sveitarfélagsins á árinu 1.042 talsins. Nokkur fækkun hefur orðið á íbúum og þegar spá fyrir árið 2019 var unnin stóð íbúafjöldinn í 1.025 og við það er miðað fyrir næsta ár. Fækkunina má m.a. rekja til þess að stórar fjölskyldur fluttu af svæði sem og breyting á lögheimilisskráningu einstaklinga sem ekki hafa haft fasta búsetu í sveitarfélaginu til nokkurra ára. Aðrar skýringar sýnist okkur ekki vera að finna á þessari fækkun og bindum við vonir við að íbúum muni fjölga á nýju ári.“
Mannfjöldi eftir kyni, aldri og sveitarfélögum 1998-2018 – Sveitarfélagaskipan hvers árs | ||||||||||
2017 | 2018 | 2019 | 2018-2019 | |||||||
Alls | Alls | Alls | breyting | % | ||||||
Bolungarvík | Alls | 908 | 945 | 953 | 8 | 1 | ||||
Ísafjarðarbær | Alls | 3608 | 3707 | 3798 | 91 | 2 | ||||
Reykhólahreppur | Alls | 282 | 275 | 259 | -16 | -6 | ||||
Tálknafjarðarhreppur | Alls | 236 | 244 | 258 | 14 | 6 | ||||
Vesturbyggð | Alls | 1030 | 1024 | 998 | -26 | -3 | ||||
Súðavíkurhreppur | Alls | 186 | 196 | 204 | 8 | 4 | ||||
Árneshreppur | Alls | 46 | 43 | 40 | -3 | -7 | ||||
Kaldrananeshreppur | Alls | 106 | 109 | 103 | -6 | -6 | ||||
Strandabyggð | Alls | 468 | 451 | 449 | -2 | 0 | ||||
6870 | 6994 | 7062 | 68 | 1 | ||||||
Mannfjöldi 1. janúar. |