Alþýðusambandið vill róttækar breytingar á skattkerfinu

Á fundi miðstjórnar ASÍ í dag voru lagðar fram og samþykktar tillögur Efnahags-, skatta- og atvinnumálanefndar sambandsins um breytingar á skattkerfinu. Markmið breytinganna er að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu.

Rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017 sýnir að skattbyrði hinna tekjulægstu hefur hækkað mest á undanförnum árum og dregið hefur úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins. Munar þar mestu að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og vaxta- og barnbótakerfin hafa markvisst verið veikt og eru nú í skötulíki miðað við það sem áður var.

Húsnæðisstuðningur hins opinbera hefur þannig rýrnað á sama tíma fasteigna- og leiguverð hefur rokið upp. Á síðustu árum hefur barnafjölskyldum sem fá stuðning í gegnum barnabótakerfið fækkað mikið og bæturnar sem hlutfall af launum lækkað verulega. Stuðningskerfin nýtast nú aðeins fámennum hópi mjög tekjulágra einstaklinga. Þau eru ekki lengur það tekjujöfnunartæki sem lagt var upp með vegna vaxandi tekjuskerðinga. Þessu vill Alþýðusambandið breyta og leggur því fram hugmyndir um breytingar á skattkerfinu sem auka jöfnuð og ráðstöfunartekjur megin þorra launafólks.

Skattkerfið:

* Þrepaskipt skattkerfi með 4 skattþrepum

* Fjórða þrepið verði hátekjuþrep

* Skattleysismörk hækki og fylgi launaþróun

* Breytingin auki ráðstöfunartekjur mest hjá þeim sem hafa laun undir 500.000 kr. á mánuði

Húsnæðisstuðningur:

* Endurreisa þarf húsnæðisstuðningskerfin

* Koma þarf í veg fyrir að sveiflur á markaði hafi áhrif á stuðninginn og þar með afkomu launafólks

Barnabætur:

* Barnabætur nái til þorra barnafjölskyldna

* Dregið verulega úr tekjuskerðingum

* Tekjuskerðingarmörk hækki og fylgi launaþróun

Til að mæta tillögunum getur hið opinbera horft til nokkurra mögulegra tekjuöflunarleiða ss. hækkunar fjármagnstekjuskatts sem eykur samræmi í skattlagningu launa og fjármagns, upptöku auðlegðarskatts og aukins skattaeftirlits.

DEILA