Á morgun verða liðin rétt 120 ár stofnun Kaupfélags Steingrímsfjarðar Hólmavík (KSH). Í ágripi að sögu félagsins segir að félagið muni hafa verið stofnað á fundi að Heydalsá og félagið hét upphaflega Verslunarfélag Steingrímsfjarðar.
Kaupfélagið er það eina sem eftir er á Vestfjörðum og stendur enn í nokkrum rekstri. Rekur það verslun og byggingavörudeild á Hólmavík auk þess að eiga helmingshlut í Hólmadrangi ehf sem rekur rækjuvinnslu á Hólmavík.
Jón Alfreðsson hefur lengst allra verið kaupfélagsstjóri eða í 41 ár frá 1968 – 2009. Jón segir að upphaflega verslunarleyfið, sem gefið var út 1899 af Marinó Hafstein, sýslumanni í Bæ í Hrútafirði, sé enn til.
Núverandi kaupfélagsstjóri er Viktoría Rán Ólafsdóttir og segir hún að „innrammað á borði kaupfélagsstjóra er svo formlegt verslunarleyfi veitt til þess að stunda verslun í kauptúninu Hólmavík sem og innan Strandasýslu. Gjalddatakan fyrir þessu leyfi voru þá heilar 50 kr. Bréfið er titlað „Borgarbréf fyrir verzlunarfélag Steingrímsfjarðar til verzlunar í Hólmavík við Steingrímsfjörð“. Það er Marino Hafstein sýslumaður í Strandasýslu sem „gjörir kunnugt“ um ofangreint.“
Mikill bruni varð á Hólmavík 1931 og glötuðust þá öll stofngögn félagsins.
Á morgun verður afmælisins minnst með með smá kökuboði og happadrættisútdrátt í verslunarhúsnæði kaupfélagsins þar sem allir eru velkomnir, en Viktoría segir að til standi að hafa alvöru afmæli í félagsheimilinu með tilheyrandi gleði þegar vorar.