Afnám „krónu á móti krónu“ skerðingar er ein af þeim úrbótum sem hægt er að framkvæma strax ef vilji er fyrir hendi, án þess að farið verði í kerfisbreytingar eða ljúka heildarendurskoðun á almannatryggingalögunum. Hér er hægt að hlusta á þessa tilkynningu frá ÖBÍ.
„Krónu á móti krónu“ skerðing hittir það fólk verst sem hefur lægstu framfærsluna í íslensku samfélagi og ef stjórnvöld vilja vinna gegn fátækt ætti afnám hennar að vera eitt af þeirra fyrstu verkum. Til ÖBÍ leitar fólk daglega, sem er í mjög alvarlegri stöðu vegna þessara 100% skerðinga og má því með sanni segja að hér sé um kerfisbundið ofbeldi að ræða.
Ef skynsemi, réttlæti og vilji til að breyta til batnaðar ráða gjörðum stjórnvalda, hlýtur „krónu á móti krónu“ skerðingin að verða afnumin strax, þannig staðfestu stjórnvöld vilja til að tryggja samfélag fyrir alla í verki. Vilji er allt sem þarf.
ÖBÍ styður og leggur ríka áherslu á að frumvarp um afnám „krónu á móti krónu“ skerðinga verði að lögum. Afnám „krónu á móti krónu“ skerðingar er ein af þeim leiðréttingum sem örorkulífeyrisþegar hafa kallað eftir í áraraðir. Ítarlega er fjallað um málið í umsögn Öryrkjabandalags Íslands um frumvarpið.
Hvað ávinnst með samþykkt frumvarpsins?
•Fátæktargildra verður tekin út. Stór hópur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er fastur í þeirri stöðu að tekjur sem þeir afla sér auka ekki ráðstöfunartekjur þeirra vegna „krónu á móti krónu“ skerðingar. Þetta bitnar verst á þeim sem hafa lægstu tekjurnar annars staðar frá. Þessir einstaklingar myndu loksins njóta þeirra tekna sem þeir afla sér.
•Einföldun kerfisins. Útfærsla framfærsluuppbótarinnar hefur flækt kerfið verulega, þar sem hún er á skjön við aðra bótaflokka. Kerfið yrði einfaldað talsvert með því að fella framfærsluuppbótina inn í tekjutrygginguna.
•Aldurstengd örorkuuppbót myndi hætta að skerða framfærsluuppbótina og næði þar með tilgangi sínum sem er m.a. að koma til móts við einstaklinga sem ná ekki að safna réttindum í lífeyrissjóð.
•Einstaklingar munu njóta greiðslna sem eiga að bæta stöðu fólks í ákveðnum aðstæðum, s.s. dánarbóta, mæðra- og feðralauna og styrkja. Þessar greiðslur lækka og/eða taka út framfærsluuppbótina nú. Þetta er því mikið réttlætismál.
•Lagabreytingin hvetur örorkulífeyrisþega til þátttöku á vinnumarkaði.
Sæbjörg
sfg@bb.is